GSM EftirlitsmyndavélVörunúmer:  

NÝTT á Íslandi

Loksins er nú fáanleg tilvalin eftirlitsmyndavél fyrir sumarbústaði, báta, bílskúra, félagsheimili, geymslur eða aðra staði sem þarf að vakta úr fjarlægð. Eftirlitsmyndavélin er tengd við GSM farsímakerfið og sendir myndir bæði í farsíma eigenda sem og tölvupóst. Jafnframt er hægt að hringja í myndavélina og hlusta eftir umgangi.

Öryggismyndavélin sendir myndir þegar hún skynjar hreyfingu auk þess sem hægt er að hringja í hana eða senda SMS skilaboð og fá senda mynd hvenær sem er. Myndavélin er búin hljóðnema sem hægt er að hlusta á með því að hringja í hana og heyra þannig hvort umgangur sé á staðnum.
Jafnframt sendir myndavélin viðvörun þegar rafmagn fer af henni, sem gefur til kynna að rafmagn sé farið af því húsi sem vaktað er – þó ekki sé það nauðsynlegt. Innbyggð rafhlaða endist allt að 24 klukkustundir í bið.

Íslenskar leiðbeiningar fylgja.

Hafið samband við sölumenn Svar tækni í síma 510-6000 eða kíkið við í Síðumúla 37 fyrir nánari upplýsingar.

   Tilboð: Kynningartilboð 59.900,- kr.
69.900,- kr.
 Panta vöru