|
Þjónustudeild
Á þjónustudeild okkar starfar hópur sérfræðinga á sviði upplýsingatækni. Fjöldi viðurkenninga fyrir staðin námskeið eru til vitnis um þá þekkingu sem safnast hefur saman og býðst viðskiptavinum Svar tækni til afnota. Starfsmenn þjónustudeildar sjá um uppsetningu, innleiðingu og viðhald ýmiskonar verkefna á sviði upplýsingatækni, þar á meðal IP símkerfi, netkerfi, tölvukerfi, IP myndavélakerfa, öryggislausna, viðskiptahugbúnaðar ofl.
Hjá þjónustudeild hefur einnig farið fram sértæk hugbúnaðarþróun eftir óskum viðskiptavina en þar má til dæmis nefna kosningakerfi og ýmisskonar greiningarhugbúnað sem leggst ofan á IP símalausnir frá Swyx.
Haukur Hauksson er þjónustustjóri Svar tækni en tekið er við þjónustubeiðnum í síma 510-6000 eða á netfangið thjonusta@svar.is
Aðgangur að þjónustuborði Svar tækni - uppsetningarskrá
Þjónustuverkstæði
Á þjónustuverkstæði Svar tækni starfar vaskur hópur tæknimanna sem annast allar viðgerðir á þeim búnaði sem fyrirtækið selur.
Svar tækni er viðurkenndur þjónustuaðili Acer á Íslandi og er eini söluaðilinn á Íslandi sem veitir 3ja ára ábyrgð á öllum Acer tölvubúnaði. Þjónustuverkstæði Svar tækni sér jafnframt um þjónustu fyrir Panasonic, Samsung, Mirai, Logitech, Polk Audio ofl.
Starfsmenn þjónustuverkstæðis hafa tamið sér öguð vinnubrögð og starfa eftir reyndum verkferlum til að tryggja stöðugleika í þjónustu.
Þjónustuverkstæði Svar tækni er staðsett í Síðumúla 37 og er opið alla virka daga á milli 09:00 og 17:00. Hægt er að hafa samband við starfsmenn þess í gegnum síma 510-6000 og með tölvupósti á netfangið thjonusta@svar.is
Verðskrá og skilmálar þjónustuverkstæðis Svar tækni:
Skoðunargjald 3.900 kr. Forgangsþjónusta * 5.900 kr. Tímagjald á verkstæði 7.900 kr. Vírusleit og hreinsun 9.900 kr. Viðhaldspakki ** 12.900 kr. Enduruppsetning stýrikerfis 15.900 kr. Gagnabjörgun 0 - 30GB 4.900 kr. Gagnabjörgun 31 GB og yfir 7.900 kr. Rykhreinsun 4.900 kr. Tjónaskýrsla 6.900 kr. Útgáfa Recovery CD 2.490 kr.
* Forgangsþjónusta þýðir að bilanagreining hefst innan 3ja klst. 50% afsláttur er veittur ef tölva er ekki tilbúinn næsta virka dag. ** Viðhaldspakki inniheldur rykhreinsun, vírusleit og hreinsun og uppsetningu vírusforrits ásamt uppfærslu stýrikerfis |