“Lorem ipsum dolor sit amet, consectetuer adipiscing elit, sed diam nonummy nibh euismod tincidunt ut laoreet dolore magna aliquam erat volutpat.”
Svar Info
Svar tækni kynnir nýtt á markað sérþróað fullvaxið greiningartól fyrir Swyx IP símkerfin, Svar Info. Með Svar Info er hægt að skoða nánast allt sem viðkemur notkun á símkerfinu, hver notar það mest, hver minnst og hvernig álag dreifist á milli deilda, starfsmanna eða eftir tímabilum.
Kerfið er álagsmælir, sýnir svartíma og safnar upplýsingum um alla símanotkun fyrirtækisins. Hægt er að búa til fullkomnar skýrslur og láta kerfið senda þær sjálfkrafa á valin netföng. Sem dæmi má nefna daglegar skýrslur yfir svörunartíma eða fjölda tapaðra símtala.
Svar Info er upplýsingamiðill þeirra, sem vilja hafa yfirlit yfir þennan kostnaðarlið og hentar bæði stórum og smáum fyrirtækjum. Með lausninni má auðveldar ná tökum á símakostnaði fyrirtækisins. Auk þess má stórbæta símsvörun og símaþjónustu með markmiðasetningum út frá þeim upplýsingum sem liggja fyrir í kerfinu. Hægt er að fá upplýsingar fram sem grafísk súlurit, lista á skjá eða skýrslu á prentara.
Svar Info er tilvalið fyrir alla þá sem vilja ná betri tökum á símasvörun fyrirtækja. Þó svo að ákveðinn hluti samskipta fari fram á tölvupósti í dag þá fara mikilvægustu samtölin, þ.e. pantanir og lokaafgreiðsla, enn fram í gegnum síma og því er það afar mikilvægt að fyrirtæki séu ekki að tapa tekjum einfaldlega vegna þess að símanum er ekki sinnt á réttan hátt.

