Fréttayfirlit

Nýlegar fréttir

  • Svar tækni ehf. býður einfalda lausn á innandyra neyðarhnappi. Hnappurinn er settur upp á þær tölvur sem óskað er eftir og geta þá starfsmenn á auðveldan hátt tvísmellt á hann og sett aðvörun í gang og  óskað þar með eftir aðstoð annarra starfsmanna, án þess að viðskipta-vinur taki eftir. Einnig er hægt að fá þrýstihnappa sem [...]

    lesa meira
  • Þýski IP símkerfaframleiðandinn Swyx hefur vottað þá hýstu lausn sem Svar tækni hefur boðið frá fyrirtækinu á íslenska markaðnum undanfarið. Hér á eftir má lesa fréttatilkynningu Swyx af þessu tilefni.

    lesa meira
  • Eigandi sumarbústaðar gat brugðist skjótt við þegar hann fékk myndir af innbrotsþjófum í bústaðnum sendar í farsíma sinn, á heimili sínu í Reykjavík.

    lesa meira
  • Svar tækni kynnir nýjung á íslandi: Neyðarhnappur fyrir stofnanir og fyrirtæki.

    lesa meira
  • Út er kominn nýr bæklingur um myndeftirlitslausnir Svar tækni.

    lesa meira

Eldgosið vaktað af Mobotix

20.5.2010

Eldgosin tvö í Eyjafjallajökli og á Fimmvörðuhálsi hafa verið undir öruggu eftirliti ef svo má segja því fjölmargar eftirlitsmyndavélar frá þýska framleiðandanum Mobotix vakta eldfjallið allan sólarhringinn. Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu á vef Mílu en milljónir manna hafa fylgst með útsendingunni frá þessu stórfenglega en jafnframt hættulega náttúrufyrirbrigði.

Það er mikill heiður fyrir Mobotix að myndavélar frá þeim séu valdar í þetta vandasama verk en aðstæður á Valahnjúki, þar sem myndavélin er staðsett, eru afar erfiðar. Þökk sé frágangi Mobotix á myndavélum sínum, sem eru skv. IP-66 staðlinum, þola vélarnar sterkan vind, rigningu og snjó – að ógleymdri öskunni!

Mobotix eftirlits og öryggismyndavélar hafa gengið afskaplega vel á Íslandi, en íslenski markaðurinn er einn sá kröfuharðasti vegna þeirrar harðgerðu veðráttu sem við búum við.

Hafðu samband við söluráðgjafa okkar í síma 510-6000 ef þú vilt vita meira um Mobotix öryggis og eftirlitsmyndavélar.

Svar tækni er sölu- og þjónustuaðili Mobotix á Íslandi.