Fréttayfirlit

Nýlegar fréttir

  • Svar tækni ehf. býður einfalda lausn á innandyra neyðarhnappi. Hnappurinn er settur upp á þær tölvur sem óskað er eftir og geta þá starfsmenn á auðveldan hátt tvísmellt á hann og sett aðvörun í gang og  óskað þar með eftir aðstoð annarra starfsmanna, án þess að viðskipta-vinur taki eftir. Einnig er hægt að fá þrýstihnappa sem [...]

    lesa meira
  • Þýski IP símkerfaframleiðandinn Swyx hefur vottað þá hýstu lausn sem Svar tækni hefur boðið frá fyrirtækinu á íslenska markaðnum undanfarið. Hér á eftir má lesa fréttatilkynningu Swyx af þessu tilefni.

    lesa meira
  • Eigandi sumarbústaðar gat brugðist skjótt við þegar hann fékk myndir af innbrotsþjófum í bústaðnum sendar í farsíma sinn, á heimili sínu í Reykjavík.

    lesa meira
  • Svar tækni kynnir nýjung á íslandi: Neyðarhnappur fyrir stofnanir og fyrirtæki.

    lesa meira
  • Út er kominn nýr bæklingur um myndeftirlitslausnir Svar tækni.

    lesa meira

Bein útsending frá Þjóðhátíð

30.7.2010

Svar tækni, Geisli ehf og MBL.is bjóða í samstarfi upp á beina útsendingu frá Þjóðhátíð í Vestmanneyjum.

Hægt er að fylgjast með helstu atburðum Þjóðhátíðar í gegnum vef Morgunblaðsins en myndin er tekin upp með Mobotix IP eftirlitsmyndavél frá Svar tækni, en Geisli í Vestmanneyjum sá um uppsetningu.

Eftirlitsmyndavélarnar frá Mobotix hafa slegið í gegn á Íslandi á undanförnum misserum og geta leyst ólík verkefni, allt frá því að vakta verðmætan varning yfir í að sýna beint frá skemmtidagskrá í Vestmanneyjum!

Nánari upplýsingar um Mobotix eftirlits- og öryggismyndavélar veita söluráðgjafar Svar tækni í síma 510-6000.