Svar tækni kynnir nýjung í eftirliti með IP myndavélakerfum
Með tilkomu IP væðingar á myndavélakerfum næst fram mikil hagræðing við uppsetningu og rekstur en jafnframt verður allt utanumhald og samþætting við önnur kerfi þægilegri. Sem dæmi má nefna að auðvelt er að samþætta IP myndavélakerfið við innri vefsíður fyrirtækja eða við IP símkerfi fyrirtækja séu þau að nota slík.
Aðgengi að gögnum og útsendingu myndavélanna er mun þægilegra og í raun geta stjórnendur nú fylgst með því sem er að gerast í fyrirtækinu hvar sem þeir eru staddir svo lengi sem þeir hafa tengingu við Internetið.
Analog gegn stafrænu
Með tilkomu nýrra stafrænna IP myndavélakerfa hafa gæði myndavélanna aukist til muna en upplausnin er nú allt að þrefalt til fjórfalt meiri en í hefðbundnum analog myndavélakerfum. Jafnframt næst fram mikil hagkvæmni við uppsetningu þar sem IP myndavélarnar leggjast ofan á núverandi netkerfi og því þarf ekki sér lagnir fyrir hverja myndavél eins og áður.
Aukin afköst
Annar möguleiki sem oft er hoft framhjá við nýtingu myndavélakerfa er sú að þegar starfsemi fyrirtækja er dreifð á milli húsa, hæða eða niðurhólfaðs skrifstofurýmis getur öflugt myndavélakerfi aukið afköst þar sem starfsmenn sjá hvorn annan á upplýsingaskjám og geta því vitað hvort viðkomandi sé við skrifborðið sitt og taki símann eða hvort hann sé upptekinn með viðskiptavin hjá sér.
Dæmi um notkunarmöguleika IP myndeftirlitskerfa:
- Öryggiseftirlit til varnar þjófnaði
- Upplýsingagjöf um staðsetningu samstarfsfélaga
- Upplýsingagjöf um umferð á tilteknu svæði, s.s veg eða bílaplani
- Sjálfvirk niðurskráning bílnúmera sem fara um ákveðið svæði
- Auðveldar eftirlit með víðfeðmu svæði
- Eitt samhæft og sameiginlegt myndeftirlitskerfi dreift á marga vinnustaði eða útibú
Nánari upplýsingar
Myndbrot úr Mobotix myndavélum
Ítarlegar upplýsingar um vörulínu Mobotix
Bæklingur um IP myndavélakerfin frá ACTi
Ítarlegar upplýsingar um vörulínu ACTi