Acer yfirtekur HP sem mest seldu fartölvur í heimi
Tölvuframleiðandinn Acer hefur tekið fram úr HP sem mest selda fartölvumerkið í heiminum samkvæmt nýjum tölum frá fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu að hagnaður á tímabilinu hafi aukist um 63% sem er yfir spám greiningarfyrirtækja. Markaðshlutdeild Acer á fartölvumarkaði heimsins alls er nú 19.3% samkvæmt nýrri könnun rannsóknafyrirtækisins Gartner en þar með hefur Acer tekið forystu á þessum mikilvægasta markaði tölvugeirans og um leið skotið helstu samkeppnisaðilum sínum, HP og Dell, ref fyrir rass. „Árangur okkar í Evrópu og Bandaríkjunum er helsta ástæða fyrir þessum tíðindum. Geta Acer til að koma sífellt með nýjar vörur á markað, á undan samkepninni, hefur gert okkur kleift að ná þessum undraverða árangri, löngu áður en við áætluðum sjálfir.“, sagði Gianfranco Lanci forseti Acer .
Undraverður árangur
„Þetta er ótrúlegur árangur hjá Acer. Þegar við hófum sölu á þeirra vörum fyrir um 7 árum síðan voru þeir í 5-6. sæti á öllum listum en lofuðu góðu og því ákváðum við að taka þetta merki á okkar arma. Það hefur verið ánægjulegt að fylgjast með þróun þeirra síðustu ár en nokkur ár eru síðan Acer fartölvur voru þær mest seldu í Evrópu og nú eru fartölvurnar frá þeim jafnframt þær mest seldu í heiminum. Þetta hefur eingöngu verið hægt því Acer framleiðir góða vöru með nýjustu tækni, á betra verði en samkeppnin.“ segir Rúnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Svar tækni, sölu og þjónustuaðila Acer á Íslandi. Svar tækni ehf. rekur viðurkennt Acer þjónustuverkstæði en allar Acer tölvur frá Svar tækni bera 3ja ára ábyrgð.
Nánari upplýsingar veitir Daníel Rúnarsson, markaðsstjóri Svar tækni, í síma 860-6004.
Til baka
|