Yfir tíu þúsund símtöl á sólarhring á loftlagsráðstefnu

Augu heimsins beinast nú að Kaupmannahöfn þar sem fram fer loftlagsráðstefna Sameinuðu Þjóðanna. Mikið umstang er í kringum ráðstefnuna en þúsundir manns taka þátt í ráðstefnunni, bæði starfsmenn Sameinuðu Þjóðanna og ráðuneyta ýmissa landa.

Á bakvið ráðstefnuna er umfangsmikið tæknikerfi en íslenska fyrirtækið Svar tækni, ásamt systur fyrirtæki sínu Svar Danmörk, standa að símkerfi ráðstefnunnar.

Símkerfið sem Sameinuðu Þjóðirnar völdu er Swyx IP símkerfið frá Svar. „Það var okkur mikill heiður að Sameinuðu Þjóðirnar hafi valið Swyx símkerfið og okkur sem þjónustuaðila. Undirbúningur hófst löngu fyrir ráðstefnuna og hafa starfsmenn okkar, bæði íslenskir og danskir, unnið að undirbúningi verkefnisins undanfarna mánuði í Kaupmannahöfn og verða fram yfir ráðstefnuna til að sjá til þess að allt gangi vel fyrir sig.“ segir Rúnar Sigurðsson framkvæmdastjóri Svar tækni og stjórnarformaður Svar Danmark.

Mikil notkun er á kerfinu þær tvær vikur sem ráðstefnan stendur yfir en yfir tíu þúsund samtöl eiga sér stað í símkerfinu á hverjum sólarhring.
 „Svar tækni hefur þróað í samstarfi við Tölvubankann sérhæft greiningartól sem sundurliðar alla notkun á Swyx símkerfinu. Þannig sjáum við álagið á hverjum klukkutíma og getum greint notkunina niður á ákveðnar deildir.“ bætir Rúnar við.

Aðalskrifstofur Sameinuðu Þjóðirnar nota einnig Swyx IP símkerfið í sínum daglega rekstri og því mikil viðurkenning fyrir símkerfaframleiðandann að þeir hafi af reynslu sinni ákveðið að treysta Swyx og Svar fyrir þessu stóra og mikilvæga verkefni.

Fréttatilkynning 14.12.2009

Nánari upplýsingar veitir Daníel Rúnarsson í síma 510-6000.



Til baka