Morgunverðarfundur um símkerfi og myndavélakerfi

Næstkomandi fimmtudag, 28. maí, býður Svar tækni til morgunverðarfundar þar sem kynntar verða nýjungar á Swyx IP símkerfum og Mobotix IP myndavélakerfum. Farið verður yfir helstu kosti þess að nýta sér IP netið við flutning hljóðs og myndar ásamt því að bent er á öflugar sparnaðarleiðir.

Fundurinn verður haldinn á Hótel Sögu - Radisson SAS í salnum Yale.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir - en vinsamlegast skráið ykkur á skraning@svar.is með upplýsingum um fjölda gesta og frá hvaða fyrirtæki.

Swyx - nútíma IP símkerfi

IP símkerfin frá Swyx henta hvaða fyrirtæki sem er, hvort sem það er einföld skrifstofa með nokkra starfsmenn eða stórfyrirtæki með starfsstöðvar víða um land eða jafnvel heim. Swyx þróast og breytist með fyrirtækinu, reglulega koma uppfærslur með helstu nýjungum á símkerfamarkaði og með uppfærsluréttindum tryggir þú þínu fyrirtæki ávallt nýjasta símkerfið – því má segja að Swyx sé síðasta símkerfið sem þú kaupir!

Mobotix IP - hágæða myndeftirlitsvélar

Mobotix býður yfi rgripsmikla línu af eftirlitsmyndavélum sem geta leyst öll þau verkefni sem fyrir þær eru lagðar. Með hærri upplausn en keppinautar sínir tekst Mobotix að skara fram úr í myndgæðum. Ekki er þörf á sérstökum zoom-linsum því auðvelt er að skoða upptökur eftir á með digital zoom. Jafnframt getur ein myndavél nú leyst af hólmi allt að fjórar hefðbundnar.
Mobotix eftirlitsmyndavélarnar notast við IP-net samskiptamáta sem gerir alla fjarskoðun mun auðveldara en áður hefur þekkst. Jafnframt sparast tími og kostnaður við lagnavinnu þar sem ekki þarf sérstakan rafmagnskapal að hverri myndavél.
Einnig er hægt að nýta þau lagnakerfi sem fyrirtæki eru með fyrir í netkerfum sínum.
Svar tækni er viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mobotix á Íslandi.





Til baka