Eldgosið vaktað af Mobotix eftirlitsmyndavélum

Eldgosin tvö í Eyjafjallajökli og á Fimmvörðuhálsi hafa verið undir öruggu eftirliti ef svo má segja því fjölmargar eftirlitsmyndavélar frá þýska framleiðandanum Mobotix vakta eldfjallið allan sólarhringinn. Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu á vef Mílu en milljónir manna hafa fylgst með útsendingunni frá þessu stórfenglega en jafnframt hættulega náttúrufyrirbrigði.

Það er mikill heiður fyrir Mobotix að myndavélar frá þeim séu valdar í þetta vandasama verk en aðstæður á Valahnjúki, þar sem myndavélin er staðsett, eru afar erfiðar. Þökk sé frágangi Mobotix á myndavélum sínum, sem eru skv. IP-66 staðlinum, þola vélarnar sterkan vind, rigningu og snjó - að ógleymdri öskunni!

Mobotix eftirlits og öryggismyndavélar hafa gengið afskaplega vel á Íslandi, en íslenski markaðurinn er einn sá kröfuharðasti vegna þeirrar harðgerðu veðráttu sem við búum við.

Hafðu samband við söluráðgjafa okkar í síma 510-6000 ef þú vilt vita meira um Mobotix öryggis og eftirlitsmyndavélar.

Svar tækni er sölu- og þjónustuaðili Mobotix á Íslandi.

Mynd: Íris Stefánsdóttir



Til baka