Um Svar tækni
Svar tækni er frumkvöðull á sviði upplýsingatækni sem leitast við að veita viðskiptavinum sínum persónulega þjónustu.
Sala og þjónusta á símkerfum og öryggismyndavélum myndar kjarnastarfsemi Svar tækni en jafnframt veita starfsmenn fyrirtækisins alla almenna ráðgjöf og þjónustu í upplýsingatækni.
Við leggjum áherslu á traust og árangursríkt samstarf við núverandi viðskiptavini og bjóðum nýja viðskiptavini velkomna í hópinn.
Við bjóðum þig velkominn til okkar að Síðumúla 35 og saman finnum við rétta lausn á þínum verkefnum.


